Um okkur
About
Photo
Audio
Video
duetto002002.gif
Home
duetto002002.gif duetto002002.gif duetto002002.gif duetto002002.gif
Við höfum unnið saman í mörg ár og vaxið sem listamenn og skemmtikraftar.
Okkar styrkur liggur í góðum söng og sérstaklega góðu samstarfi sem gerir okkur samstíga og örugga í okkar verkefnum.

Ráðstefnur:
Erlent lagaval okkar sem flestir þekkja og tungumálakunnátta gerir okkur að ákjósanlegum skemmtikröftum á ráðstefnum erlendra gesta. Tölum mjög góða þýsku, ensku og sænsku.

Veislustjórar:
Tökum að okkur veislur við öll tilefni og stýrum og skemmtum með myndarbrag.

Árshátíðir:
Mætum sem atriði á árshátíð með skemmtun og söng. Perlur úr ýmsum áttum.
Mikið úrval laga og dúetta gerir okkur kleift að hitta naglann á höfuðið í hverri veislu.

Þorrablót:
Mætum með frábært söngatriði í anda þorrans á þorrablótið.

Jólahlaðborð:
Mætum í jólahlaðborðið með hressandi söngskemmtun og með jólalög og hátíðarsyrpur í farteskinu.
Smærri veislur:
Tökum að okkur að skemmta í litlum veislum t.d. í heimahúsum.
Ef þörf krefur er undirleikur spilaður af geisladiski og getum því troðið upp við nánast allar aðstæður.

Ferming:
Viltu fá fjör í fermingarveisluna? Mætum í veisluna og hristum upp í gömlu frænkunum. Hressir og með lagaval við allra hæfi.

Söngskeyti:
Mætum og syngjum sóló eða dúett við þess háttar tilefni. Tilvalið fyrir sérstök tækifæri eins og á Valentínusardegi en þá mætum við með rós og syngjum ástardúett fyrir frúna.. nú eða karlinn.

Kemstu ekki í afmælið? Sendu okkur í staðinn með syngjandi kveðju.

Brúðkaup:
Klassískir í grunninn syngjum við í kirkjunni það sem brúðhjónin óska sér.

Brúðkaupsveislan:
Hristum ærlega upp í veislunni með hressu lagavali. Brúðhjónin tekin í bakaríið með persónulegum textum frá duett.is